Nokkuð miklar breytingar verða framkvæmdar á Virkri vefmælingu á morgun laugardaginn 03.02. Hnökrar verða á mælingum á meðan að breytingar standa yfir. Settur verður upp nýr öflugur netþjónn, en einnig verða gerðar breytingar á kerfinu sjálfu. Eftir þessar breytingar er Virk vefmæling orðin vel í stakk búin fyrir næstu átök, sem eru mælingar á mbl og visi. Notendur vefjanna verða þó að sjálfsögðu ekki varir við neitt.
Villa í morgunskýrslu. Það er villa í morgunskýrslunni. Gestafjöldi á viku, meðaltalstalan, er röng. Þessi villa kom í ljós við fyrstu mánaðarmótin, jan/feb - lagfært í næstu viku.
Eldri tilkynningar. Þátttakendur í prufutalningu eru hvattir til að lesa eldri fréttir (vinstramegin) ef þeir vilja kynna sér framvindu mála í prufumælingum Virkrar vefmælingar.
Hjálpsamir þátttakendur Baldur Kristinsson og Boban Acimovic hjá mbl eru hjálparhellur vikunnar. Þeir komu Modernus í samband við MySQL sérfræðinga í Bandaríkjunum. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir.
Góða helgi,
Modernus.
Post created 02. Feb 2001 16:33