Ágætu þátttakendur í prufumælingum Virkrar vefmælingar.
Nú er hægt að fá "Morgunskýrslu" frá Virkri vefmælingu með sjálfvirkum hætti - daglega eins og við vorum búnir að lofa.
Sendingu þessa nefnum við "Morgunskýrslu" vegna þess að við sendum hana klukkan 04:00 að morgni dags. Skýrslan inniheldur lykiltölur yfir umferðina á vefnum ykkar frá því deginum áður. Morgunskýrslan er ætluð framkvæmdastjórum og forsvarsmönnum vefsetranna.
Prufumælingar ganga samkvæmt áætlun.
Við erum að gera ákveðnar breytingar á gunnuppsetningu kerfisins sem tekur upplýsingarnar "niður" af Internetinu. Þessar breytingar koma til með að auka öryggið í mælingum um leið og þær auka afköstin við móttöku gagna. Það sem "klikkaði" hjá okkur 25. og 26. janúar var það, að við náðum ekki að koma öllum upplýsingum fyrir í gagnagrunninum með sama hraða og þær bárust inn til okkar. Þegar mest gekk á (á föstudaginn 25.01.) vorum við að fá allt að 40 "fyrirspurnir" á sekúndu inn í gagnagrunninn. Líklega er það Íslandsmet!
Góðar ábendingar vel þegnar.
Við viljum þakka mjög góðar ábendingar og virka þátttöku í prufumælingunum hingað til. 7 Þátttakendur mynda samráðshóp, sem koma mun saman hjá Verslunarráði Íslands (Sigríður Andersen mun boða þann fund) þegar samræmd vikugögn liggja fyrir frá öllum. Við vonumst til að það verði fyrir 15. febrúar. Mbl og Vísir verða tengdir um leið og breytingum á kerfinu lýkur.
Þátttakendur í prufumælingum Virkrar vefmælingar eru þessir:
Alþingi, RÚV, Veðurstofan, Strikið, Torgið, Netfangaskrá, Gulalínan, Símaskráin, Form.is, Skífan, kvennavefurinn femin.is, Netdoktor, Leit.is, áhugamálavefurinn Hugi.is. Mbl og Visir verða tengdir í þessari viku. Nokkrir aðrir vefir eru að prufa hugbúnaðinn án þess að vera beinlínis þátttakendur í tilrauninni um að koma á samræmdum upplýsingum um netumferð á Íslandi.
Modernus ehf.
Garðastræti 17
101 Reykjavík.
s. 562 7006
Post created 31. Jan 2001 17:41