Soffía Steingrímsdóttir vefstjóri á femin.is sendi Modernus skeyti á fimmtudaginn kl. 14:58 með eftirfarandi orðsendingu: "Sæll Jens.
Það eru eitthvað skrítnar tölurnar fyrir femin í dag." Við vorum ekki tilbúnir að viðurkenna þetta alveg strax, en eftir skoðun kom í ljós að gagnagrunnurinn var hættur að hafa undann álaginu. Á föstudaginn keyrði svo um þverbak og þegar mest gekk á voru fyrirspurnir í gagnagrunninn orðnar um 40 á sekúndu! Soffíu þökkum við kærlega fyrir árverknina.
Ýmsar ábendingar hafa borist og hefur Ingvi Stígsson tæknistjóri Alþingisvefsins verið ötulastur í þeim efnum. Sumar af þeim breytingum/lagfæringum sem menn hafa stungið upp á höfum við þegar framkvæmt en aðrar eru enn í farvatninu.
Til þess er prufumælingin að læra af henni. Modernus leggur áherslu á að nota prufumælingarnar til að gera ýmsar "tilraunir" og betrumbætur á meðan þessu tímabili stendur. Við höfum nú hætt að mæla mbl í bili og á meðan gerum við breytingar í gagnagrunninum og bætum við vélaaflið.
Ástand mælinga eftir dagsetningum:
25.01. Mælingar ekki marktækar allan sólarhringinn.
26.01. Mælingar ekki marktækar allan sólarhringinn.
27.01. Mælingar ekki kerfisbundið í gangi hjá öllum - grunnur niðri
28.01. Mælingar ekki kerfisbundið í gangi hjá öllum - grunnur niðri
28.01. eftir kl. 20:40 Mælingar aftur hafnar á hjá öllum nema mbl.is.
Um MySQL grunn Modernus
Modernus notar MySQL gagnagrunn útg. 3.23, sem kom út sl. sumar og hefur nú fengið viðurkenningu sem "stöðugur grunnur" eins og sjá má af eftirfarandi frétt, sem er tekinn orðrétt af vefnum þeirra:
"MySQL 3.23 Declared Stable. MySQL, the worlds most widely used Open Source Database, version 3.23, is now declared stable. It's been almost two years since the previous version 3.22 was declared stable in January 1999. This means that MySQL 3.23 can now be safely used in production environments. Version 3.23 was released under the GNU GPL-license in June 2000 and has been available in several pre-stable versions ever since."
Ástæðan fyrir því að Modernus notar MySQL gagnagrunninn er einkum tvíþætt: Í fyrsta lagi þá er grunnurinn að stofni til frír til afnota, en þjónusta Modernus myndi ekki standa undir sér ef greiða þyrfti háa leigu og stofngjald fyrir gagnagrunninn. Í öðru lagi er hann einkar vel samhæfður Linux og Apache umhverfi Modernus, en Linux/Apache uppsetningin þykir vera mjög örugg og hraðvirk. Þótt grunnurinn sé frír til afnota, þýðir það ekki að fyrirtæki þurfi engu til að kosta. Þannig er Modernus aðili að nokkurs konar samfélagi fyrirtækja sem nota og þróa MySQL umhverfið, þar sem greitt er fyrir ráðgjöf, upplýsingar og kennslugögn. Þess má til gamans geta að NASA, geimferðastofnun Bandaríkjanna, hefur nýlega tekið MySQL í notkun í stað Oracle. Lítið inn á http://www.mysql.com.
Eftirfarandi tilkynning var send blöðunum á laugardag:
Fréttatilkynning frá Modernus ehf. vegna truflana á vefsetrinu mbl.is að kvöldi 26. janúar.
Modernus ehf. vill biðja lesendur mbl.is afsökunar á trufunum sem urðu á vefsetrinu föstudagskvöldið 26. janúar s.l.
Modernus ehf. hóf að mæla notkunina á mbl.is laugardaginn 20. janúar s.l. með þar til gerðum hugbúnaði, sem fyrirtækið er að prófa þessa dagana. Fyrirtækið reyndist ekki ráða yfir vélaafli til þess að mæla hina geysi miklu umferð, sem mbl.is er að fá. Við aftengingu hugbúnaðarins, um kl. 22:30 á föstudagskvöldið, olli einföld stafsetningarvilla því, að í stað þess að leiða umferðina framhjá Modernus.is með skriftinni "mbl=dummy" var skrifað "mbl=dummyy" (2 y) í þar til gert forrit.
Notendur Netscape 4.76 urðu fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu, að fá villutilkynningu Modernus.is upp á skjáinn í stað forsíðu mbl.is þegar þeir reyndu að opna vefinn. Þetta er eins pínlegt fyrir okkur og hugsast getur, en svona fór þetta. Vefsetur mbl.is á hér enga sök að máli, ábyrgðin liggur alfarið hjá Modernus ehf.
Reykjavík, 27. janúar 2001
F.h. Modernus ehf.
Jens Pétur Jensen
framkvæmdastjóri.
Post created 28. Jan 2001 13:50