Vantalningar 25.01. og 26.01.

Þátttakendur í Virkvi vefmælingu athugið!

Nú er svo komið að vélbúnaður og gagnagrunnur Modernus hefur ekki undann við skráningar. Upplýsingar dagsins í dag og í gær eru rangar!

Engin truflun á sér þó stað á mældum vefjum, vandamálið er eingöngu gagnvart okkur sjálfum. Ástæðan liggur í gagnagrunninum, við náum ekki að reikna nógu fljótt úr upplýsingunum til þess að senda ykkur gögninn innan tímamarkanna. Álagið er einfaldlega of mikið eftir að við byrjuðum að mæla mbl.is á laugardaginn síðasta.

Nýr netþjónn verður settur upp á morgun laugardag til viðbótar við þá þrjá, sem nú vinna verkið - við vonumst til að ljúka við lagfæringar um helgina.

Jens P. Jensen
Modernus.

"welcome to the real world"
Ingvar Hjálmarsson mbl.is

Post created 26. Jan 2001 18:12