Ný og lægri verðskrá Við höfum nú lokið við að endurskoða verðskrána fyrir Virka vefmælingu. Mönnum fannst verðskráin í hærra lagi og einhver sagði sem svo að hún væri "yfir sársaukamörkunum". Nýja verðskráin tekur tillit til þess hve umferðin á Netinu á Íslandi er í raun mikil en tekjurnar í raun lágar. Nýja verðskráin er áfram miðuð við verðskrá HitBoxPro.com nema hvað taxtinn er frá 8% til 69% prósent lægra en hjá þeim. Sjá http://get.hitbox.com/cgi-bin/getit.cgi?hbpro&hbpro_pricing.
Birtingar í apríl Modernus hefur fengið fréttir af því að kaupendur auglýsinga á netmiðlum séu farnir að "halda að sér höndum" (eins og viðmælandinn orðaði það) vegna áforma um birtingar á samræmdum upplýsingum um netumferð. Ef rétt reynist eru þetta grafalvarlegar fréttir fyrir Modernus. Við gerum allt sem við getum til þess að mega hefja birtingar sem fyrst, til þess að eyða þeirri óvissu sem kann að vera farin að myndast.
Drög að verksamning Nú liggja fyrir drög að verksamning um fyrirkomulag birtinga á samræmdum upplýsingum um netumferðina. Kynnið ykkur drögin, en þau er að finna undir Lykilorð o.fl. undir liðnum Samræmd vefmæling. Samráðshópurinn fundar aftur á morgun föstudag kl. 15:00.
Ekki við okkur að sakast Lesið Atburðaskrána og fræðist um hvað olli truflunum þann 20.03. þegar mælingar hjá okkur vantöldu umferðina talsvert milli kl. 12:20 og 17:30.
Modernus
Post created 29. Mar 2001 15:14