Gestafjöldi vs. fjöldi síðuflettinga

Enn um gestafjölda vs. flettingar Menn eru ekki á einu máli um hvort auka eigi vægi upplýsinga um gestafjölda og minnka að sama skapi vægi flettinganna. Selma Hrönn hjá ruv.is er frekar á því að flettingar séu mikilvægari en gestafjöldi en Ragnar Bjartur hjá torg.is hallast í hina áttina og sendi þessar hugleiðingar [Modernus stytti]. Gaman væri að fá bréf frá fleirum. Modernus.

Bréf frá Torg.is varðandi Gestafjölda og fjölda síðuflettinga:

"Ef við ætlum að ná því markmiði að koma á samræmdum vefmælingum verða þær að vera í senn áreiðanlegar og réttmætar. Ég vil geta metið áhrif þeirra breytinga sem ég geri á vef mínum, jafnvel þótt ég geti ekki borið þau saman við önnur vefsetur með beinum hætti.

Flettingar Flettingarnar segja mér hversu oft merktar síður eru opnaðar. Ég get fylgst með notkun á tilteknum tækjum og vinsældum
einstakra liða með því að tengja þær síðum sem ég merki. Þær hafa hinsvegar lítið gildi til samanburðar við aðra, þar sem þeim væri hægt að fjölga með breyttri framsetningu efnis. [Það gæti þó verið í andstöðu við reglur um innsetningu á kóða - innsk. Modernus].

Innlit Innlitin segja mér hve oft fólk kemur inn á vefinn. Þau eru
mun hentugri til samanburðar. Þótt hægt sé að fjölga þeim með því að virkja forrit sem heimsækja vefinn reglulega er erfitt að hafa umtalsverð áhrif á þau án þess að hægt sé að lesa það út úr gögnunum.

Gestafjöldi Fjöldi gesta á dag segjir mér hversu margir vafrar eru nýttir til að skoða vef minn. Hægt er að fjölga þeim með því að neita
að taka við kökum eða eyða þeim eftir hverja heimsókn en að öðru leyti er þetta ágæt breyta. Jafnvel þótt margir noti bæði vafra heima hjá sér og í vinnunni og séu þar með oftaldir þarf að taka með í reikninginn að heilu fjölskyldurnar nota sama vafrann sem hefur gagnstæð áhrif.

Niðurstaða mín er þessi. Ef við viljum að mark sé tekið á mælingunum þurfum við að færa áhersluna frá flettingum og yfir á innlit og gestafjölda. Jafnframt þurfum við að skýra hvað felst í þessum mælingum til að skapa traust hjá notendum upplýsinganna."

Bestu kveðjur,
Ragnar Bjartur Guðmundsson
ragnarbjartur@torg.is


Post created 28. Mar 2001 10:58