Verksamningurinn í burðarliðnum - beðið með birtingar Vinnan við gerð verksamnings milli Modernus, Verslunarráðs og þátttakenda í Samræmdri vefmælingu er tímafrekari en við áttum von á. Samráðshópurinn er sammála um að heillavænlegra sé að bíða með birtingar þar til samningurinn liggi fyrir. Næsti fundur samráðshópsins er á fimmtudaginn kemur. Eftir að drögin að samningnum liggja fyrir verður boðað aftur til fundar með öllum þátttakendum og ákveðið hvenær birtingar skuli hefjast. Það ætti að geta orðið í apríl.
Verðskrá Modernus Við erum að endurskoða verðskrána með tilliti til efstu marka hennar og óska samráðshópsins. Ljóst er að Modernus treystir sér þó ekki til að lækka mánaðargjöldin í þremur lægstu gjaldflokkunum en þeir eru: kr. 1.731 að 5000 flettingum, kr. 3.206 að 10.000 fl. og 7.805 að 25.000 flettingum. Gjaldskráin verður nú lengd og lækkuð í efri mörkunum í ljósi þess hve íslenskir vefir eru í raun "stórir".
Modernus
Post created 27. Mar 2001 17:10