Öflugur samráðshópur Modernus hitti samráðshópinn á fundi hjá Verslunarráði í dag. Samráðshópurinn samanstendur af Þorvaldi Jacobsen frá Vísi, Ingvari Hjálmarssyni frá Mbl og Ásgeiri Friðgeirssyni frá Strikinu ásamt Sigríði Á. Andersen lögfr. Verslunarráðs.
Góður fundur Fundurinn í dag var mjög gagnlegur og fjallaði fyrst og fremst um innihald verksamningsins ásamt verðskrá Modernus. Okkur er ljóst, að vegna þeirrar hálfgerðu "monopol" aðstöðu sem myndast, er eðlilegt að fulltrúar þátttakenda komi fram sem n.k. samningsaðili gagnvart Modernus. Verslunarráðið gegnir aftur á móti hlutverki hlutlauss eftirlitsaðila eins og eðlilegt er.
Notendur Virkrar vefmælingar geta mjög vel við unað að hafa þá félaga Ásgeir, Ingvar og Þorvald sem sína fulltrúa, þetta eru menn með mikla sjórnunarreynslu og jafnframt góðir talsmenn Internetsins á Íslandi. Næsti fundur var ákveðinn á miðvikudaginn kemur og stefnt er að fyrstu birtingum í apríl.
Modernus
Post created 26. Mar 2001 17:15