Virk vefmæling var sýnd í fyrsta skipti opinberlega á hádegisverðarfundi Skýrslutæknifélags Íslands á Grand Hótel Reykjavík í dag 25. janúar. Benedikt Svavarsson vefstjóri símaskrár.is sýndi fundarmönnum mælingar dagsins beint af Netinu. Sýningin, sem og erindi Modernus, vakti mikinn áhuga og margir hafa komið að máli við Modernus eftir fundinn.
Modernus skýrði jafnframt frá því, að nú væru 13 stórir vefir þátttakendur í prufumælingum og að þeir hefðu þegar fengið beinan aðgang að gagnagrunninum. Það er mikilvægt fyrir Virka vefmælingu að þátttakendur í prufumælingum miðli ábendingum og athugasemdum til Modernus.
Vegna öryggissjónarmiða er því miður ekki hægt að fjölga þátttakendum meira í bili. Reiknað er með prufumælingar haldi áfram til 15. febrúar n.k. Fyrst eftir þann tíma treystum við okkur til að opna fyrir inngöngu fleiri vefja. Fyrir þessu eru eingöngu tæknilegar ástæður og varkárni af hendi Modernus.
Modernus ehf. vill þakka Skýrslutæknifélagi Íslands fyrir að fá að halda erindi á fundinum og fyrir að láta sig vefmælingar varða. Það er von okkar, að gestunum hafi þótt fundurinn bæði fræðandi og gagnlegur.
Ingvari Hjálmarssyni, forstöðumanni mbl.is, viljum við einnig þakka fyrir einkar fróðlegt erindi.
Modernus.
Post created 25. Jan 2001 16:05