Gestafjöldi á dag - hugmynd að breytingum Við höfum verið að skoða upplýsingar um gestafjölda á dag hjá allmörgum vefjum og velta því fyrir okkur hvort við ættum etv að leggja meiri áherslu á þennan lið. Okkur sýnist sem svo, að þessar upplýsingar segi meiri sögu heldur en fjöldi síðuflettinga. Ef það er meiningin að fylgjast með því hversu margir einstaklingar skoða vefinn, þá er liðurinn Gestir á dag sá besti í Virkri vefmælingu til þess. Athyglisvert er jafnframt, að Þessi liður verður miklu síður fyrir truflunum af okkar hálfu, t.d. ef netsamband við okkur verður fyrir einhverjum áföllum eins og átti sér stað þann 20.03. Ef þið skoðið liðinn Gestir á dag í þessari viku, þá sjáið þið, með því að bera dagana saman hvorn við annan, að þriðjudagurinn 20.03. er ekki með umtalsvert færri gesti en aðrir virkir dagar í vikunni þrátt fyrir að truflanir hafi orðið á mælingum hjá okkur. Þetta gefur okkur tilefni til þess að endurskoða þá kenningu að flettingarnar séu n.k. grundvallartala sem hvað mest sé treystandi á. Gaman væri að fá álit notenda á þessu og viðbrögð við þeirri hugmynd Modernus að færa liðinn Gestir á dag í efsta sæti undir yfirskriftinni Umferð. Ennfremur er hugmyndin, að birta gestafjöldann í fyrsta dálki í Samræmdri vefmælingu í stað flettinga, sem myndu þá vera í þriðja dálki á eftir innlitum. Pælum í þessu.
Góða helgi, Modernus.
Hver telur gesti á öllum bæjum,
hver telur hraðast með fínum græjum.
Hver telur allt nema ys og þys,
hver nema teljari.is
Moddi.
Post created 24. Mar 2001 11:47