Drög að samningi í vinnslu

Verslunarráð semur drög að samning Sigríður Andersen lögfr. Verslunarráðs er að semja drög að verksamning, sem fjalla á um fyrirkomulag á opinberum birtingum. Modernus og notendur þurfa að undirskrifa samninginn ásamt Verslunarráði. Modernus er þeirrar skoðunar að samningur þessi þurfi hvorki að vera flókinn né fyrirferðamikill, heldur eigi hann fyrst og fremst að undirstrika skyldur aðila samningsins og vera formlegt leyfi fyrir birtingu gagna. Samningsdrögin verða birt á stillingarsíðunni (Lykilorð o.fl.) undir Samræmd vefmæling.

Verðskrá Modernus Eftir ábendingar ætlum við að endurskoða verðskrána okkar. Vera má að tekjumöguleikar leynist víðar en við gerðum ráð fyrir. Frá þessu verður greint fljótlega.

Aðgangur þriðja aðila að gögnum Nú höfum við fengið það staðfest, að ákveðin vefsetur hafa gefið stórum auglýsendakaupendum upp notendanafnið sitt og lykilorð og þannig í raun þegar hafið birtingar á sínum gögnum. Við þessu er ekkert að gera. Modernus hefur engan umráðarétt yfir gögnum hvers og eins - aðeins yfir grunninum sem slíkum. Þetta er því hverjum og einum í sjálfsvald sett.

Skemmilegar upplýsingar Hér eru nokkrar einkar skemmtilegar upplýsingar fyrir tæknikarlana: Þetta sýnir álagið kl. 12:14 í dag:

12:14pm up 34 day, 18:48, 1 user, load average: 0.38, 0.33, 0.39
46 processes: 41 sleeping, 5 running, 0 zombie, 0 stopped
CPU states: 21.9% user, 7.1% system, 0.0% nice, 70.9% idle
Mem: 1036356K av, 265284K used, 771072K free, 51900K shrd, 154296K buff
Swap: 1028024K av, 0K used, 1028024K free 29944K cached

Post created 22. Mar 2001 12:12