Staðan í verkefninu Modernus vill gera þátttakendum í þessu metnaðarfulla verkefni "Samræmdri vefmælingu" grein fyrir stöðu verkefnisins á þessari stundu.
Fyrirtækið Modernus ehf. er rekið með lágmarkstilkostnaði miðað við umfang, enda er ekkert rukkað fyrir þjónustuna eins og öllum er kunnugt um. Þetta þýðir jafnframt, að ekki hefur verið fjárfest í dýrum netþjónum til þessa heldur er grunnurinn rekinn á vel búnum pentium vélum á eigin 2mb tengingu við Intís. Á meðan að ekki er farið að greiða fyrir þjónustuna, hlýtur hún eðli málsins samkvæmt að takmarkast við þessa staðreynd.
Samræmd vefmæling Eftir að birtingar hefjast, er líklegt að það muni hafa í för með sér jákvæða breytingu í tekjuöflun vefjanna á listanum og draga athygli að vefsetrum, sem til þessa hafa ekki verið áberandi. Modernus er þetta ljóst og því hefur verið reynt eftir fremsta megni, að stíga eitt skref í einu, ná sem mestri samstöðu um málið, en jafnframt að þoka málinu áleiðis. Nú er svo komið, að flestir þátttakendur vilja hefja birtingar en aðrir vilja doka við. Við munum halda áfram, ásamt Verslunarráði, að reyna að ná samstöðu um framhald málsins svo að sem flestir sjái sér hag í áframhaldandi þátttöku. Víst er að Modernus hefur engan áhuga á að reka fleyg í annars ágætt samfélag Internetsins á Íslandi. Það er jafnframt von okkar, að tæknilegar truflanir eins og í gær, sem í raun eru smávægilegar og ekki meiri en við má búast í verkefni sem þessu, verði ekki til þess að menn heltist úr lestinni. Úr þessu er þó ljóst að ekkert verður úr birtingum í mars, en apríl er vormánuður og vonandi vorar vel á íslenska netmarkaðinum.
Modernus
Post created 21. Mar 2001 10:10