Mælingar eðlilegar á ný

Nú er ljóst, að ekki tekst að senda réttar tölur til notenda fyrir daginn í dag. Allir vefir eru því vantaldir í dag. Mælingar ganga nú aftur eðlilega fyrir sig eftir að aðalnetþjónninn hefur verið endurræstur, en á tímabili í dag virðist sem hann hafi ekki náð fullu sambandi við vefsetrin. Ekki er nákvæmlega vitað hvað olli þessu.

Staðan í verkefninu Samræmd vefmæling Modernus vill gera þátttakendum í þessu metnaðarfulla verkefni "Samræmdri vefmælingu" grein fyrir stöðu verkefnisins á þessari stundu:

Virk vefmæling er rekinn með lágmarkstilkostnaði miðað við umfang, enda er ekkert rukkað fyrir þjónustuna eins og öllum er kunnugt um. Þetta þýðir jafnframt að ekki hefur verið fjárfest í dýrum netþjónum heldur er grunnurinn rekinn á vel búnum pentium vélum á 2mb tengingu við Intís. Á meðan að ekki er farið að greiða fyrir þjónustuna, hlýtur hún eðli málsins samkvæmt að takmarkast við þessa staðreynd.

Við höfum aldrei lofað 100% þjónustu og viljum ekki að notendur búist við því á þessu stigi. Þegar fram í sækir og farið verður að greiða fyrir þjónustuna eiga notendur hins vegar kröfu um enn betri þjónustu og 100% mælingu alla daga ársins. Fyrst þá verður hægt að kaupa inn öflugri vélbúnað og/eða að hýsa þjónustuna hjá einhverju traustu fyrirtæki sem sérhæfir sig í hýsingu. Við höfum uppi áform um slíkt en tíminn og framhald verkefnisins mun leiða í ljós hvað verður.

Komist Samræmd vefmæling á laggirnar, er ljóst að það mun hafa í för með sér mikla breytingu í tekjuöflun stærstu vefjanna og draga athygli að öðrum vefjum, sem til þessa hafa ekki verið áberandi. Modernus er þetta ljóst og því hefur verið reynt af fremsta megni, að stíga eitt skref í einu en jafnframt að þoka málinu áleiðis. Nú er hins vegar svo komið, að flestir vilja hefja birtingar en aðrir vilja doka við. Við munum halda áfram, ásamt Verslunarráði, að reyna að ná sem mestri samstöðu um framhald málsins svo að sem flestir sjái sér hag í áframhaldandi þátttöku. Modernus hefur engan áhuga á að reka fleyg í annars ágætt samfélag Internetsins á Íslandi. Það er jafnframt von okkar, að tæknilegar truflanir eins og í dag, sem í raun eru smávægilegar og ekki meiri en við má búast í verkefni sem þessu, verði ekki til þess að menn heltist úr lestinni.

Modernus

Post created 20. Mar 2001 19:20