Notendur Virkrar vefmælingar fá notendanöfn og lykilorð

Ágætu þátttakendur í prufumælingum Virkrar vefmælingar.

Fyrstu notendur kerfisins hafa nú fengið beinan aðgang að nýjum gagnagrunni Modernus. Fyrsti notandinn, sem ekki er beinlínis þátttakandi í þróun og prufukeyrslu hugbúnaðarins, er ruv.is. Nýr vefur Ríkisútvarpsins er nú mældur með Virkri vefmælingu. Við óskum Selmu Hrönn Maríudóttur vefstjóra ruv.is til hamingju með nýja vefinn.

12 stórir vefir eru nú mældir með Virkri vefmælingu. Um sinn höfum við ákveðið að fjölga ekki fyrirtækjum í prufumælingu á meðan við stillum gagnagrunninn og vélbúnaðinn í takt við álagið næstu daga.

Slóðin http://new.teljari.is er ekki opinber slóð, heldur er hún eingögnu fyrir þátttakendur í prufukeyrslu Virkrar vefmælingar. Menn eru beðnir um að fara varlega með niðurstöður mælinga á meðan að á prófunum stendur og líta ekki á gögninn sem staðfest (rétt) gögn af hálfu Modernus.

Prufukeyrslan heldur áfram. Modernus áskilur sér rétt til breytinga á hugbúnaðinum enn um sinn, og enn eru nokkur atriði sem þarfnast nánari skoðunar. Við stefnum að því að ljúka prufumælingum um miðjan febrúar og hvetjum þátttakendur til þess að senda okkur ábendingar í tölvupósti eða hringja!

Með von um áframhaldandi gott samstarf,

Jens P. Jensen
framkv.stj.
Modernus ehf.
s. 562 7006





Post created 24. Jan 2001 14:24