Ákvörðun um þátttöku í Samræmdri vefmælingu Nú er komin upp síða undir Lykilorð o.fl/Samræmd vefm. þar sem notendur geta tengt vefinn við gagnagrunn Samræmdrar vefmælingar og staðfest með því þátttöku í opinberum birtingum á lykiltölum. Vinsamlegast takið stund frá og kynnið ykkur efnið á síðunni. Til að byrja með verður hægt að "aftengja" með sama hætti. Það verður þó ekki hægt eftir að kerfið er formlega komið í gang. Sjá texta þar að lútandi í boxi á síðunni.
Morgunskýrslan röng hjá sumum Morgnuskýrslan góða virðist ekki hafa skilað sér til allra á laugardaginn var né heldur eru allir sáttir við tölurnar í henni í morgun. Við erum að stöðugt að betrumbæta skýrsluna en hún er eini sýnilegi hlutinn af vaktþjónustunni (Varðhundinum) sem verður tilbúin innan skamms.
100% uppitími í 1 mánuð Kerfið verður sífellt áreiðanlegra. Það er ákveðinn áfangi fyrir okkur að geta tilkynnt að mælingar og færslur í gagnagrunn hafa nú verið stöðugar og án nokkurra truflana í rúmlega einn mánuð. Síðasta stopp hjá okkur var 15. febrúar s.l. 7,9,13, bankað á tré!
Atburðaskrá Munið að lesa atburðaskrána, og Eldri fréttir, þegar þið eruð að rannsaka mælingar aftur í tímann og vantar upplýsingar.
Viðmiðunarvika Vikan sem nú fer í hönd verður fyrsta viðmiðunarvikan fyrir tilraunabirtingu á samræmdum upplýsingum um netumferðina. Reiknað er með að þátttakendum verði sýndur listinn mánudaginn 26. mars.
Modernus.
Post created 19. Mar 2001 10:16