Samræmd vefmæling

Ákvörðun um þátttöku í birtingum Nú er búið að forrita tengingu á kerfinu við gagnagrunninn sem mun sjá um birtingar á samræmdum upplýsingum út á Netið. Undir liðnum Lykilorð o.fl. geta notendur Virkrar vefmælingar nú tengt vefinn sinn við þennan gagnagrunn. Lesið textann vandlega yfir og athugið sérstaklega, að ekki er hægt að aftengja vefinn með jafn einföldum hætti.

Tilraunabirtingar 26. mars n.k. Helmingur samráðshópsins hittist á fundi hjá Verslunarráði í morgun (föstudag) og ákvaðu fundarmenn fyrir sitt leyti, segir Sigríður Andersen hjá Verslunarráði, að ekkert sé því til fyrirstöðu að hefja tilraunir með birtingar til skráðra þátttakenda mánudaginn 26. mars. Vika 12 verður því að öllum líkindum fyrsta viðmiðunarvikan. Vika nr. 10 og líðandi vika eru þegar í gagnagrunni Samræmdar vefmælingar.

Mælingar hafnar aftur á mbl Eftir nokkra erfiðleika við uppsetningu á nýja vefnum eru mælingar nú aftur komnar í gang á mbl.is.

Leitarvélar o.fl. Nú er búið að fjölga ip-tölum og nöfnum leitarvéla. Athugið að þekktir vefir virðast fá tiltölulega fáar tilvísanir frá leitarvélum og tilvísanir frá erlendum leitarvélum eru mjög fáar yfirleitt. Yfirlitssíðan, sem sýnir m.a. hvernig forritið er stillt og hverjir fá morgunskýrlsu, er nú einnig tilbúin. Sjá Lykilorð. o.fl. Næsta stóra viðbót er tengin SMS-vaktþjónustunnar.

Góða helgi, Modernus.



Post created 16. Mar 2001 17:01