Ýmsar breytingar tilbúnar

Flettingar eftir síðum Við höfum fengið mjög góð viðbrögð hjá notendum við nýjustu breytingunni. Það að geta séð flettingar eftir síðum nýtist öllum en alveg sérstaklega stóru vefsetrunum sem halda úti "síðum" sem líkjast í flestu sjálfstæðum vefsetrum. Til eru vefsetur þar sem 2-3 síður vefsins fá álíka mikla athygli og dæmi er um vefsetur þar sem forsíðan er ekki mest sótta síðan.

Mikill vill meira Óskin um þessa breytingu kom frá Ingvari og Baldri á mbl sem lögðu áherslu á að geta rýnt í notkunina á vinsælustu síðunum. Nú hefur Ragnar Bjartur á torg.is bætt um betur og bætt við ósk um það, að mögulegt verði að skoða umferðina á hverri síðu á viku- og mánaðargrunni. Sem stendur er einungis hægt að fá yfirlit yfir daginn. Þetta erum við að skoða núna og í fljótu bragði virðist okkur þetta ekki að vera mikið mál :)

Fyrstu birtingar Við stefnum að því að geta hafið tilraunabirtingar innan hópsins sem tekur þátt í Samræmdri vefmælingu mánudaginn 26. mars n.k. Til þess að niðurstöður verði marktækar þurfa allir að vera búnir að setja javakóðann inn á allar síður, sem á að mæla, fyrir miðnætti sunnudaginn 18. mars. Vika nr. 12 verður þá viðmiðunarvikan, sem birtingin mun byggist á ef þetta næst. Tæknilega séð er Modernus tilbúinn í þetta.

Strax í upphafi þessa verkefnis var ákveðið að visir.is og mbl.is kæmu síðastir inn í mælingarnar. Þetta var gert til þess að prufukeyra mætti kerfið fyrst undir tiltölulega litlu álagi en auka það síðan jafnt og þétt. Að sjálfsögðu verða engar birtingar án fulls samráðs við alla vefina, sem eru þátttakendur í Samræmdri vefmælingu, en þeir eru nú um 25 að tölu.

Modernus

Post created 14. Mar 2001 13:21