Flettingar eftir síðum Mjög stór breyting og framför er nú orðin sýnileg í Virkri vefmælingu. Nú er hægt að smella beint á síðuheitin undir Topp síður og fá fram upplýsingar um fjölda flettinga fyrir viðkomandi síðu. Þetta er stærsta einstaka breytingin í forritinu frá því það var fyrst sett fram í júní 2000.
Morgunskýrslan Þeir sem ekki fengu morgunskýrsluna í morgun ættu að fá hana í fyrramálið. Gott væri að fá póst frá þeim sem sakna skýrslunnar á webmaster@modernus.is á morgun [14.03].
Fyrstu birtingar Við stefnum að því að geta hafið tilraunabirtingar til þátttakenda í Samræmdri vefmælingu mánudaginn 26. mars n.k. Til þess að niðurstöður verði marktækar þurfa allir að vera búnir að setja javakóðann inn á allar síður sem á að mæla fyrir miðnætti sunnudaginn 18. mars. Vika nr. 12 verður viðmiðunarvikan, sem birtingin mun byggist á ef af verður.
Strax í upphafi þessa verkefnis í desember s.l. var ákveðið að visir.is og mbl.is kæmu síðastir inn í kerfið. Þetta var gert til þess að prufukeyra mætti kerfið fyrst undir tiltölulega litlu álagi en auka það síðan jafnt og þétt. Engar birtingar verða án samráðs við alla vefina, sem eru skráðir sem þátttakendur í Samræmdri vefmælingu, en þeir eru nú 25 að tölu.
Modernus.
Post created 13. Mar 2001 17:20