Undirbúningur langt kominn fyrir tilraunabirtingar.

Skammt í fyrstu birtingar Modernus er nú tilbúinn að hefja tilraunabirtingar innan hópsins á samræmdum upplýsingum um internetumferðina. Forsvarsmenn stærstu vefjanna munu nú koma saman á fundi og ákveða fyrirkomulag og tímasetningar. Undirritaður var búinn að hringja í nokkra aðila og fá munnlegt samþykki fyrir tilraunabirtingum innan hópsins. Birtingar þessar munu ekki hefjast fyrr en haft hefur verið samband við alla og Modernus hefur fengið grænt ljós frá samráðshópnum.

Jens P. Jensen, Modernus.

Liðurinn Síður í forritinu Rétt er að benda á, að nú fyrst eru upplýsingarnar undir liðnum "Síður" í Virkri vefmælingu orðnar eins og þær eiga að vera. Gögnin sem reiknað er út frá eru sólarhringsgögn. Þetta þýðir, að niðurstöður líðandi dags gilda fyrir daginn áður en liðnir dagar sýna tölur viðkomandi dags.
Dæmi: Dvalartími á vef: Þegar þessi liður er skoðaður í dag 8. mars þá eru niðurstöðurnar frá því í gær 7. mars. Ef smellt er á 7. mars þá má sjá að niðurstöðurnar eru þær sömu og 8. mars. Ef 6. mars er skoðaður, þá birtast tölurnar fyrir 6. mars o.s.frv.

Bláa línan Ef gögn eru sótt fyrir eina viku (með því að velja vikunúmerið (lengst til vinstri á dagatalinu) eða ef skoðuð er mánaðargögn, með því að smella á mánaðarheitið, má sjá bláa línu birtast inn í súlunum í súluritinu. Bláa línan sýnir meðaltal 4 sömu vikudaga aftur í tímann.
Dæmi: Flettingar. Valin er vika nr. 9. Nú birtist blá lína í mánudagssúlunni sem segir til um fjölda flettinga að meðaltali síðustu 4 mánudaga. Með þessu móti má á einfaldan hátt sjá hver þróunin er í heimsóknum inn á vefinn miðað við síðastliðinn mánuð. Athugið, að bláa línan birtist ekki fyrr en tveimur vikum eftir að kóðinn hefur verið settur fyrst inn. Innan skamms verður hægt að sjá sömu upplýsingar fyrir hverja einstaka síðu.

Vinsamlegast sendið inn upplýsingar um villur þegar þið rekist á þær - líka stafsetningarvillur!

Modernus

Post created 08. Mar 2001 13:09