Fyrstu tölur!

Flettingar Símaskrár í febrúar Svavar Benediktsson vefstjóri simaskra.is reið á vaðið og leyfði Modernus að birta upplýsingar fyrir nýliðinn febrúar á fundinum hjá Verslunarráði. Af tölunum geta menn ráðið nokkuð um sína stöðu.

Vefsetur: www.simaskra.is tölur fyrir febrúar 2001

Fjöldi síðuflettinga: 1.485.074
Innlit (heimsóknir): 432.491
Gestafjöldi: 154.275

Heildafjöldi flettinga í Samræmdri vefmælingu:

Heildarfjöldi í feb. 2001: 10.066.756
Fjöldi vefja: 22

Meginniðurstaða fundarins hjá Verslunarráði er þessi:

Nú verður hafist handa við að undirbúa fyrstu birtingar, sem verða tilraunabirtingar í fyrstu og aðeins aðgengilegar þátttakendum í Samræmdri vefmælingu. Til þess að nálgast tölurnar verða menn að vera með gilt notendanafn og lykilorð.

Samráðshópurinn, sem í eru fulltrúar stærstu vefjanna, verður kallaður saman á fund hjá Verslunarráði innan skamms.

Modernus.

Post created 06. Mar 2001 13:57