Fundur í fyrramálið kl. 10 hjá Verslunarráði

Fundurinn hjá Verslunarráði Á morgun eru réttir 3 mánuðir frá því að fyrsti fundurinn um samræmdar vefmælingar var haldinn hjá Verslunarráði Íslands. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og þátttakendum í prufumælingum Virkrar vefmælingar fjölgað umtalsvert. Að sögn Sigríðar Andersen [sigga@chamber.is] verður þátttakan góð, menn eru því hvattir til að skrá sig hjá Sigríði svo þau hjá ráðinu getir undirbúið fundinn sem best - rýmið er takmarkað.

Efni fundarins:

A. Verslunarráð útskýrir hlutverk ráðsins í samræmdum vefmælingum og birtingum á opinberum upplýsingum um netnotkun.

B. Reglur. Modernus fjallar um þörf á vinnureglum varðandi eftirfarandi atriði:
1. Siðareglur. Mega allir taka þátt? Hvað með áróðursvefi, öfgavefi, klámvefi o.s.frv.?
2. Reglur varðandi uppitíma. Hvernig á að bregðast við þegar vefur í mælingu fer niður og hvernig á að bregðast við ef mælingar stöðvast hjá Modernus?

C. Birtingar. Ræða þarf eftirfarandi:
1. Hvaða upplýsingar á að birta?
2. Í hvaða röð á að birta upplýsingar? Modernus gerir tillögu.
3. Tíðni birtinga og tímabil milli mælinga - Tillaga um vikutölur.
4. Á að birta upplýsingar víðar en hjá Verslunarráði og Modernus?

D. Verðskrá Modernus. Gjaldtaka Verslunarráðs o.fl.

E. Ef tími vinnst til, Forritið sjálft. Nokkur atriði varðandi breytingar ásamt birtingu á gögnum frá simaskra.is

Modernus.

Post created 05. Mar 2001 11:44