Viðbætur og breytingar. Ýmsar breytingar verða sjáanlegar í forritinu um og eftir næstu helgi. Ingvar á mbl, og Ingvi Stígsson á althingi.is hafa komið fram með nokkrar breytingatillögur og óskir um viðbætur, sem nú er verið að vinna að. Stærsta óskin um viðbót kemur frá mbl, en hún er sú að hægt verði að sjá meðaltalstölur í súluritum. Að þessu er nú verið að vinna. Okkur er mikið kappsmál að forritið verði áfram hraðvirkt líkt og hingað til. Allar viðbætur kalla á auka fyrirspurnir, sem aftur draga örlítið úr hraðanum.
Fundur með Verslunarráði 6. mars Nú fer að draga til tíðinda og á fundinum með Verslunarráði á þriðjudaginn næsta er ætlunin að koma saman til skrafs og ráðagerða varðandi birtingu á samræmdum upplýsingum um netumferðina á stærstu vefsetrum landsins. Á fundinum verða birtar tölur frá simaskra.is á vegum Modernus, og auðvitað er mönnum frjálst að birta sýnar eigin tölur ef þeir vilja. Reiknað er með að fundurinn nýtist Samráðshópnum vel og að fljótlega eftir fundinn verði hægt að fara af stað með fyrstu birtingar fyrir notendur og síðan opinberer birtingar í framhaldi af því.
3ja hnappa mýs Vefsíða þessi virkar með þriggja hnappa mús. Prófið að halda Crtl-takkanum niðri og hreyfa hjólið á músinni samtímis!
Modernus, Garðastræti.
Post created 27. Feb 2001 17:05