IP-tölur ekki persónulegar upplýsingar

Modernus ehf. sendi Persónuvernd formlega fyrirspurn þann 28. janúar s.l. um hvort fyrirtækið og starfsemi þess væri tilkynningarskylt. Starfseminni var lýst ítarlega og spurningin til embættisins hljóðaði svo: "Er hér um tilkynningaskylda starfssemi að ræða í skilningi laga um persónuvernd?

Svar barst frá Persónuvernd þann 8. febrúar s.l. og hljóðaði það svo: "Með vísan til þessarar lýsingar á starfsemi yðar, sem fram kemur í
tölvubréfi yðar dags. 28. janúar 2001,

"Upplýsingarnar sem við söfnum innihalda engar persónulegar upplýsingar s.s. nöfn, kennitölur eða heimilisföng, né heldur söfnum við netföngum
einstaklinga."

telur Persónuvernd að umrædd starfsemi falli utan gildissviðs laga nr.
77/2000 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Samkvæmt því er ekki um tilkynningarskylda vinnslu að ræða í skilningi laganna."

Svar þetta er ákveðinn léttir fyrir Modernus, en líka gott fyrir ykkur notendur. Nú er ljóst, að okkar mati, að gögnin (t.d. ip-tölur) eru ekki persónulegar upplýsingar. Við höfum því enga sérstaka skoðun á því hvernig notendur Virkrar vefmælingar umgangast gögnin sem forritið aflar þeim.

Modernus.

Post created 23. Feb 2001 16:44