Inn-síður, út-síður o.s.frv.

Upplýsingarnar undir liðnum Síður birtast aftur seinna í dag eftir gagngera breytingu í forriti. Breytingin felst í því að framvegis verður nóttin notuð til þess að endurreikna liðinn dag. Þetta eru upplýsingar sem breytast mjög lítið á milli klukkutíma en þó skiptir miðnættið miklu máli þegar þannig háttar til að gestirnir koma inn á vefinn fyrir miðnætti en yfirgefa hann eftir miðnætti.

Dvalartími á vef og síðu Ofangreind breyting í forriti gerir þessar upplýsingar stöðugri en áður því gagnasafnið, sem reiknað er út frá, er nú einn sólarhringur í stað 1 klukkutíma áður. Dvalartíminn er því ekki lengur háður því hvenær dagsins upplýsingarnar eru sóttar heldur segir niðurstaðan til um meðalinnitíma gestanna miðað við næsta sólarhring á undan. Fyrir okkur sparar þessi breyting mikið minnisrými í gagnagrunni og minkar þar með álagið á kerfið.

Veðrið hefur merkjanleg áhrif Netumferðin virðist aukast í réttu hlutfalli við vindhraða - því verra veður, því meiri umferð á netinu.


Modernus

Post created 20. Feb 2001 15:46