Fjöldi nýrra gesta, IP útilokanir o.fl.

Nýir gestir Við erum að skoða fjölda nýrra gesta og hvort kökurnar virki eðlilega. Þessar upplýsingar verða áreiðanlegri eftir því sem lengri tími líður frá því að mælingar hófust. Allir gestir vefsins eru "nýir gestir" á fyrsta degi mælinga, en síðan dregur úr fjölda nýrra gesta eftir því sem frá líður, nema vefurinn sé að sækja í sig veðrið!

Undir Lykilorð o.fl. er liður sem heitir IP útilokanir. Þarna á að setja inn þær ip-tölur, sem undanskilja á frá mælingum. Þegar fram í sækir er nauðsynlegt að skrá ip-tölu Modernus þarna inn, ásamt ip-tölum annarra sjálfvirkra "heimsókna" sem hafa það hlutverk eitt að kanna uppitíma og ástand vefsins.

Leitarvefurinn ha.is bættist í hópinn í dag og þar með eru báðir íslensku leitarvefirnir þátttakendur í Virkri vefmælingu. Við hvetjum netverja til þess að nýta sér íslensku leitarvefina, ha.is og leit.is til fulls, án þeirra er erfitt að gera sér grein fyrir umfangi íslenska hluta Netsins.

18. febrúar Átjándi febrúar lætur undarlega og hefur náð skipta um sæti við þann sextánda í súluriti yfir flettingar. Hann hann hefur verið áminntur og verður rekinn aftur á sinn stað í dag. Ástæðan er mannleg mistök við þýðingar á svonefndum "time/date" töflum úr ensku í íslensku.

Modernus

Post created 18. Feb 2001 12:48