20.12. 710 vefir tengdir íslenska teljaranum - 152.291 skráning í desember.
Prufukeyrsla á Samræmdri Vefmælingu. Afkastageta nýja kerfisins var reynd í fyrsta sinn í síðustu viku. Öflugir netverjar sendu vélrænar heimsóknir inn á kerfið frá um 40 tölvum, sem voru sérstaklega forritaðar til verksins. Linux-eldveggurinn okkar stoppaði við 1.288.291 flettingu eftir rúmlega 4 klukkustunda "árás". Gagnagrunnur nýja teljarans, sem við notum í Samræmdu Vefmælinguna, stóðst hins vegar álagið með ágætum.
Modernus undirbýr nú uppsetningu á prufutalningum fyrir flesta af stærstu vefjum landsins en talningar í samræmdan gagnagrunn hefjast fyrir aldamót. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í Samræmdri Vefmælingu eru beðnir að setja sig í samband við Modernus og fá nýja kóðann sendan. Ath! Ekki er hægt að sækja um á netinu í Samræmda Vefmælingu - hringið í síma 562 7006.
Post created 21. Dec 2000 10:34