Morgunskýrslan tóm í morgun

Morgunskýrslan er tóm í dag vegna þess að gögn gærdagsins eru ófullkomin. Kerfið sendir skýrsluna út óútfyllta ef það vantar upplýsingar fyrir hluta af deginum. Við ætlum að breyta þessu þannig, að fram komi upplýsingar um hvað gerðist. Einnig erum við að vinna að því að ávarpa fólk með nafni í skýrslunni og bjóða góðan daginn - það þykir víst sjálfsögð kurteisi.

rsk.is Á þessum tíma ársins hugsa margir til Skattsins. Ríkisskattstjóri, rsk.is, fær javakóðann frá Virkri vefmælingu sendan í dag.

Mikill áhugi fyrir niðurstöðum Við verðum varir við vaxandi áhuga á upplýsingum um röð stærstu vefja landsins. Hingað komu fréttamenn einn daginn til þess að falast eftir upplýsingum, menn frá auglýsingastofum hafa haft samband og við höfum fengið fyrirspurnir í tölvupósti. Allir fá sama svarið: Engar upplýsingar fást, hvorki um einstaka vefi né röð þeirra. Upplýsingar munu koma frá Verslunarráði í fyllingu tímans þegar þátttakendur hafa ákveðið það.

Leitarvélar Nú eru leitarvélarnar aftur farnar að birtast undir tilvísanir. Ýmislegt hefur verið lagfært að undanförnu og nú er breytingum lokið í stórum dráttum eins og að var stefnt.

Heildartölur Hér koma heildartölur fyrir tímabilið 1. jan til 15. febrúar fyrir alla vefina 17.




Fjöldi flettinga:9.842.202
Fjöldi innlita:3.192.966
Gestafjöldi:2.064.378


Modernus ehf.
Garðastræti 17
101 Reykjavík
s. 562 7006

Post created 16. Feb 2001 10:20