Nýr vikulegur listi hefur verið gefinn út á veflistinn.is
Samgöngur
Eins og flest önnur ár þá hefjast þau á aukningu á heimsóknum á alla vefi, þar sem fólk kemur aftur úr jóladvala á vefheima. Nú skulum við byrja þennan fyrsta pistil 2018 á því að fara í gegnum fréttir og greinar vikunnar sem fjalla um samgöngur í tilefni þess að á óvart kom að ein vinsælasta síða í síðustu viku var um
tilboð á bílum.
Visitreykjavik.is kennir erlendum ferðalöngum á íslandi að
bannað er að keyra utan vega en í frekar löngum texta sem ferðamenn munu eiga í vandræðum með að lesa á meðan að þeir
keyra út af Lefisstöð inn á þjóðveginn. Þar vantar þó setningu um að þegar þeir fljúga myndavélaflygildum sínum yfir fallegan foss og hringsóla í kringum hýbíli bóndans á svæðinu, þá má
ekki skjóta flygildið niður.
// gudmundur
Post created 08. Jan 2018 10:12