Stjórnarkreppa
Stjórnmálalífið fór úr böndunum í lok vikunnar eins og sjá má í fréttum. Þar sem þetta kom upp í lok viku komust fréttir um málið ekki inn á mest lesnu fréttir vikunnar, en grein Austurfrétta „
móðir allra stjórnarkreppa“ slæddist inn á listann. Grein vísindavefsins „
hvað er að hljóta uppreist æru í lagalegum skilningi?“ fjallaði um uppreisn æru og var það hugtak búið að vera í umræðunni alla vikuna.
Stjórnmálamenn eru þeir sem eiga að bæta lífsgæði þjóðarinnar eftir sinni bestu getu og
bendir SÁÁ á fjölda sjálfsvíga þeirra ungmenna sem leita hafa til Vogs vegna fíknar sinnar.
Beinvernd eru samtök sem vilja bæta lífsgæði þjóðarinnar, en leggja áherslu á að
fækka beinbrotum þeirra sem eldri eru. Í tilefni atburða liðinnar viku birtum við því hlekk yfir á
kjúklingauppskrift Beinvendar og vonum að næg bein verði í nefi þeirra stjórnmálamanna sem gefa kost á sér fyrir komandi kosningar og þeir verði ekki of miklir kjúklingar og taki ekki á þeim stóru málum sem bæta þjóðina.
// gudmundur