Styttist í niðurstöður - lagfæring á færslukerfi

Vísir fær kóðann. Nú fer að styttast í niðurstöður úr prufumælingum Virkrar vefmælingar. Vísir fékk kóðann sinn í byrjun vikunnar og þeir Vísismenn ætla að setja hann inn á vefinn um næstu helgi, en þeir standa í flutningum þessa dagana úr DV-húsinu yfir í húsið þar sem Skíma var áður við sömu götu.

Fundur hjá samráðshóp? Þegar visir.is hefur verið mældur í eina viku verður kominn tími fyrir samráðshópinn til að hittast á nýjan leik og taka ákvarðanir varðandi Samræmda vefmælingu - þ.e. opinberar birtingar - það ætti að geta orðið um 26. febrúar.

Færslukerfi lagfært Við erum stöðugt að betrumbæta og lagfæra kerfið. Feminkonurnar Íris og Soffía eru að vanda vökular yfir tölunum sínum. Þökk sé þeim, þá hefur nú komið í ljós að fjöldi flettinga í birtingu til þeirra er minni en sá fjöldi sem kerfið mælir í raun og veru - m.ö.o. talningargrunnurinn virðist ekki hafa skilað öllum línum frá sér til femin.is á tímabilinu 1. til 7. feb. Yfir sjö daga tímabil er munurinn um 10% Villan felst í kerfi sem við nefnum "færslukerfi" en það færir tölurnar frá okkur til ykkar. Þetta er nokkuð alvarlegt en ljósi punkturinn er sá, að við eigum réttu tölurnar til. Vandinn fellst í því að koma þeim öllum til ykkar 100% rétt. Lagfæring stendur yfir en þegar henni er lokið verður gerð nákvæm grein fyrir þessu fyrir hvern og einn vef og flettingar leiðréttar aftur í tímann. Allar aðrar tölur eru hins vegar réttar.

Jens P. Jensen,
Modernus ehf.



Post created 14. Feb 2001 11:10