Netsamband við útlönd niðri í þriðja sinn á árinu.

Enn fellur netsambandið niður við útlönd. Þetta er í slæmt ástand og ætla má að viðbrögð notenda verði kröftug í þetta skiptið.

Þessi skilaboð mátti lesa af vef Intis í dag, sunnudag 11 feb. kl. 15:00

"Meðalálag á ameríkusambönd síðustu 5 mín:

Staða sambands: ------ niðri (down) ------ Úr atburðaskrá

Umferð inn 0 bitar/sek -- 0% álag (frá Ameríku til ISnet)
Umferð út 0 bitar/sek -- 0% álag (frá ISnet til Ameríku)
Umsýsluálag á beini (CPU) 8%.


Modernus er að gera tilraunir með mælingar erlendum vefsetrum með Virkri vefmælingu í Svíþjóð, Danmörku og í Póllandi. Hætt er við að tilraun sem þessi fari út um þúfur ef heldur fram sem horfir með netsambandið við útlönd. Við eru því daprir í bragði þegar útlandasambandið rofnar.


Modernus.

Post created 11. Feb 2001 15:25