Stórum breytingum lokið

Stórum breytingum lokið Við höfum nú lokið yfirferð og breytingum á kerfinu í stórum dráttum. Þær breytingar sem við gerum næstu daga hafa engin áhrif á helstu niðurstöður mælinga einsog flettingar, innlit og gestafjölda - en verða mönnum sýnilegar í ýmsum smærri atriðum.

Vinsamlegast rýnið í gögnin. Enn eiga nokkrir vefir eftir að senda okkur póst með áliti á áreiðanleika gagnanna. Áætlunin miðar að því, að 15. febrúar verði hægt að láta Verslunarráði í hendur gögn fyrir samráðshópinn.

Java rangt. Upplýsingarnar um hlutföll Java-notenda eru rangar. Unnið er að lagfæringu.

Leitarvélar komnar inn. Nú er hægt að sjá tilvísanir frá helstu leitarvélum, fleiri heitum verður bætt við á næstu dögum.

Engar súlur! Þegar það vantar súlur fyrir ákveðna klukkutíma á súluritinu, þá er líklegt að mælingar hafi verið stöðvaðar hjá okkur.

Í febrúar hafa mælingar verið stöðvaðar tvisvar vegna breytinga (sjá einnig eldri tilkynningar) sem hér segir:

05.02. kl. 15 og kl. 16 - engar mælingar
06.02. kl. 16 - engar mælingar


Modernus.

Post created 08. Feb 2001 11:07