Mbl bætist í hópinn á ný

Mælingar eru nú hafnar aftur á mbl.is eftir hrakfarirnar í lok janúar. Nýji netþjónninn gengur eins og klukka og nýja gagnagrunnskerfið hefur mjög vel undan álaginu þegar þetta er skrifað - CPU load 9-11%.

Um kerfið á bak við Virka vefmælingu.

Nýja kerfið er sett upp á þann hátt að MySQL gagnagrunnurinn tekur ekki lengur beint við gögnunum af Internetinu eins og áður, heldur fær hann þau send á klukkutíma fresti frá nýja færslukerfinu. Nýja kerfið gerir ekkert annað en að taka við gögnunum frá Netinu og senda þau í MySQL gagnagrunninn. Eftir flokkun og útreikninga í grunninum eru gögnin send í annað sinn í svokallaðan birtingagrunn sem aftur sendir gögnin til notenda þegar um er beðið. Á þessari leið eru margar hættur að varast og mörg vandamál að leysa, að lausn þeirra erum við að vinna þessa dagana.

Um framvindu mála.

Við vonumst til að ljúka óformlegum breytingum á kerfinu 15. febrúar og vera þá tilbúnir með samræmdar tölur fyrir samráðshópinn. Til loka febrúar munum við ekki framkvæma neinar breytingar á kerfinu sem hafa áhrif á mælingar og niðurstöður - nema nauðsyn kerfji. Í mars mánuði er gert ráð fyrir því að notendur ákveði sig hvort þeir muni nýta sér þjónustuna áfram og 1. apríl er síðan áætlað að reikningar verði sendir út í fyrsta sinn. Þá verða liðnir 13 mánuðir frá því að vinnan hófst við þróun og gerð íslenska teljarans.

Modernus.

Post created 07. Feb 2001 11:12