Vika 26/2018

Vika 25 (18.06 - 24.06) birt.

Veflistinn.is uppfærður
Á vef bændablaðsins er frétt um bónda sem hefur áhyggjur af uppkaupum auðmanna á bújörðum og yfirtöku veiðifélaga. Þá eru golfvellir landsins margir hverjir í slæmu ástandi m.a. vegna lélegrar umgengni íslenskra kylfinga, þó veðrið síðustu mánuði hjálpi ekki til, eins og kemur fram í grein vefsins kylfingur.is.
Vedur.is er enn langstærsti vefurinn á veflistanum, með tæplega 198.000 vikulega notendur. Má áætla að nokkuð stór hluti þeirra notenda séu kylfingar í von um betra veður en verið hefur undanfarið.
// thor

Vika 25/2018

Vika 24 (11.06 - 17.06) birt.

Veflistinn.is uppfærður

Vika 24 innihélt þjóðhátíðardag Íslendinga þann 17. júní og var frétt á vefnum visitreykjavik.is með upplýsingum um viðburði dagsins fyrir erlenda ferðamenn mikið sótt. Árleg samantekt á tekjum Austfirðinga í Fjarðabyggð, Fljótsdalshéraði, Djúpavogshrepp og Borgarfjarðarhrepp voru birtar á vef Austurfrétta, lagafrumvarp um rafrettur og áfyllingar fyrir rafrettur á vef Alþingis var mikið skoðað, sem og atvæðagreiðsla þess frumvarps.

// thor

Vika 24/2018

Vika 23 (04.06 - 10.06) birt.

Veflistinn.is uppfærður

Hestafréttir byrjuðu aftur í Samræmdrum vefmælingum með látum, en þeir fengu yfir 7 þúsund notendur yfir vikuna og komust í fimmtánda sæti, langt fyrir ofan aðra fréttavefi um hestamennsku. Síðast voru tölur fyrir Hestafréttir birtar opniberlega á veflistinn.is sumarið 2015.

// gudmundur

Vika 23/2018

Vika 22 (28.05 - 03.06) birt.

Ný vika birt á veflistinn.is

Troll.is kom með frábæra útskýringamynd af pissustaf, bæði fyrir aldna og fyrir yngri, eftir því hvert beina á bununni. En Austurfrétt sagði frá vandamáli að gæludýr geri sínar þarfir í sandkassa á Seyðisfirði.

// gudmundur

Vika 22/2018

Vika 21 (14.05 - 20.05) birt.

Nýr vikulegur listi birtur á veflistinn.is

Trolli.is, nýr vefur í samræmdum vefmælingum hækkaði um rúmar 80% frá sinni fyrstu viku nú á sinni annari viku. Ein mest lesna frétt þeirra í vikunni fjallaði um samanburð fasteignagjalda Fjallabyggðar og Kópavogi.

Ekki hækkuðu allir en nokkrir vefir voru ekki í talningu hluta vikunnar, en eingöngu var fyrri helmingur vikunnar í talningu hjá austurfrett.is. Þetta var vegna tæknilegra breytinga á vefum. Kjarni.is var einnig í sömu tæknilegum breytingum, var úti alla vikuna og er enn ekki í talningu.

// gudmundur



Page: 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 > >>News archive · Event log